Handbolti - Góður dráttur í hádeginu!!!

02.nóv.2012  08:08
Það má með sanni segja að skrautfjaðrir íslenska hanboltans muni sitja hjá í 32 liða úrslitum Eimskipsbikarsin.
Haukar (bikarmeistarar)
HK (Íslandsmeistarar)
og svo ÍBV-b (fallegasta lið landsins, valið af Mannlífi)
eru þau lið sem komast sjálfkrafa í 16 liða úrslit.
 
Þetta var ljóst núna í hádeginu þegar dregið var í 32-liða úrslit. A lið ÍBV dróst hinsvegar á móti b-liði HK. 
 
Að sögn Pálma Harðarsonar, fulltrúa ÍBV á bikardráttarhátíðinn, var andrúmslofið rafmagnað og ekki laust við að mönnum hafi verið mikið létt að þurfa ekki að fara til Eyja í fyrstu umferð. 
 
Ekki var dregið í bikarkeppni kvenna. Þær hefja leik síðar.