Handbolti - Stórleikur hjá stelpunum í kvöld.

30.okt.2012  08:12
Stelpurnar spila stórleik hér í Eyjum í kvöld. Þá kemur "spútnik" - lið FH í heimsókn. FH hefur aðeins tapað einum af fyrstu 5 leikjum mótsins, það gegn stórliði Fram. Með FH leikur ein Eyjamær, en það er Dröfn Haraldsdóttir (Halla Sverris og Hugrúnar). Það er því nokkuð ljóst að það verður við ramman reip að draga. Stelpurnar óska því eftir stuðningi á heimavelli, en með sigri komast þær í 3. sæti.