Handbolti - ÍBV semur við örvhenta skyttu.

05.júl.2012  09:04
ÍBV hefur samið við Nemanja Malovic. Nemanja er  ung örvhent skytta frá Svartfjallalandi, fæddur 1991. Hann lék á síðasta tímabili með Haukum og varð með þeim bikarmeistari.
Leikmaðurinn gerði eins árs samning við liðið með möguleika á framlengingu.
 
ÍBV liðið hefur orðið fyrir töluverðri blóðtöku frá síðasta tímabili og er því koma Nemanja mjög mikilvæg fyrir komandi átök.
 
Við lögðum nokkrar spurningar fyrir kappann:
 
Nafn: Nemanja Malovic
Fæddur: 18 nóvember 1991
Fæðingastaður: Cetinja Svartfallaland
Afhverju Ísland: Vegna þess að Ísland er með mjög góðar og sterkar deildir, með þeim bestu í Evrópu.
Takmark í handboltanum: Mitt takmark er að komast að í þýsku úrvalsdeildinni.
 
Við skulum bara vona að Nemanja nái þessu takmarki sínu og við bjóðum hann velkominn til Eyja.