Valin hefur verið lokahópur u-18 ára landliðs kvenna. Liðið tekur þátt á Opna Evrópumótinu í Gautaborg 2.-6. júlí.
ÍBV á þar 2 fulltrúa, Berglind Dúna Sigurðardóttir og Drífa Þorvaldsdóttir.
Ísland er þar í riðli ásamt Ítalíu, Rúmeníu og Þýskalandi og er fyrsti leikur liðsins gegn Rúmeníu 2. júlí kl.11:00 að íslenskum tíma.
Þjálfarar eru Inga Fríða Tryggvadóttir og Halldór Harri Kristjánsson.
Magnað hjá þessum Eyjastelpum og vonum við að þeim gangi vel.