Handbolti - Handboltaskólinn fer í gang... þátttökugjald ekkert.

18.jún.2012  12:11
Í dag mun ÍBV hefja opnar handboltaæfingar. Æfingarnar verða í 6 vikur (fram að þjóðhátíð) á mánudögum og miðvikudögum frá 16:30-18:00.
Þjálfarateymið er frekar öflugt. Erlingur Rikka, Arnar Péturs, Svavar Vignisson, Siggi Braga, Jakob Lárusson, Unnur Sigmars ofl.
 
Æfingarnar eru hugsaðar sem opnar handboltaæfingar. Farið verður yfir tækni, skot, sóknar og varnarleik.
 
Gjaldgengir eru allir krakkar (strákar og stelpur) 10-16 ára.