Handbolti - ÍBV semur við Georgetu

04.maí.2012  09:35
ÍBV hefur samið við Georgetu Grigore að spila með liðinu næsta tímabil. Leikmaðurinn kom inn til liðsins í lok október í fyrra og lék með liðinu til enda tímabilsins.
 
Georgeta reyndist hinn mesti liðstyrkur og lék vel með liðinu í úrslitakeppninni.
 
Það var því ákveðið að bjóða henni áframhaldandi samning sem hún skrifaði undir.
 
Það er engin spurning að stefnan er sett hærra með stelpurnar enda er liðið ekki langt frá þessum tveim bestu liðum, en meira um það síðar.
 
Stjórnin