Handbolti - Úrslitakeppnin hefst í kvöld!

12.apr.2012  11:42
Í kvöld hefst úrslitakeppnin hjá stelpunum okkar. Þetta er alltaf skemmtilegasti tíminn í handboltanum þar sem hver leikur hér á eftir er úrslitaleikur!
Liðið varð fyrir áfalli ( ef áfall skyldi kalla) þegar Ester Óskarsdóttir tilkynnti um að hún og Magnús Stefánsson ættu von á sínu fyrsta barni (Magnús var vissulega skammaður fyrir þetta). Ester mun því ekki leika meira með liðinu.
Það er því liðinu mikilvægara en áður að þær fái stuðning áhorfenda sem alltaf hafa stutt vel við liðið þegar á reynir.
 
Fyllum því höllina í kvöld, leikurinn hefst 19:30!