Handbolti - Ester valin í A-landsliðið.

05.mar.2012  18:47
Ester Óskarsdóttir var í dag valin í A-landsliðshóp Íslands fyrir tvo leiki gegn Svisslendingum í undankeppni EM í handbolta.  Leikirnir verða leiknir dagana 22-25.Mars, sá síðari hér á landi.  Þetta er frábær árangur hjá Ester enda leikið framúrskarandi vel með ÍBV á leiktíðinni. 
Þjálfari landsliðsins er Ágúst Jóhannsson.
 
ÍBV óskar Ester innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.