ÍBV er búið að setja upp pakka á bikarúrslitaleikinn. Leikurinn fer fram næstkomandi laugardag (25.feb). Dagskráin er svohljóðandi:
8:00 Brottför frá Eyjum til Þorlákshafnar
11:00 Rútuferð í Laugardalshöll
13:30 Bikarúrslitaleikur
15:30 Farið á SPOT þar sem verða góð tilboð á mat og drykk.
17:30 Rútferð í Þorlákshöfn
19:15 Brottför frá Þorlákshöfn.
Inni í pakkanum eru allar ferðir (herjólfur og rútuferðir) og miði á leikinn.
ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS 3.000 KRÓNUR. Frítt fyrir börn undir 13 ára!
Skráning fer fram í Týsheimilinu. Sími þar er 481-2060