Handbolti - ÍBV í bikarúrslit

08.feb.2012  21:50

Stórsigur gegn FH stúlkum

ÍBV er komið í úrslit í bikarkeppni kvenna í handknattleik, Eimskipsbikarsins, eftir stórsigur á FH, 24:13, í undanúrslitum keppninnar hér í Eyjum í kvöld.

Staðan í hálfleik var 12:7, ÍBV í hag, og okkar stelpur gerðu 12 mörk gegn aðeins sex í seinni hálfleik.
ÍBV mætir Val í úrslitaleiknum sem fram fer þann 25. febrúar í Laugardalshöll.

Grigore Ggorgata skoraði 6 mörk fyrir okkur í kvöld, Ivana Mladenovic 3, Rakel Hlynsdóttir 3 og Ester Óskarsdóttir 3. Florentina Stanciu varði 23 skot.