Handbolti - Mikilvægasti leikur tímabilsins í kvöld

07.feb.2012  09:20

FH stúlkur koma í heimsókn

Í kvöld klukkan 18:00 verður flautað til leiks í undanúrslitum Eimskipsbikars kvenna. Þá fáum við FH-inga í heimsókn. Ljóst er að þetta er mikilvægasti leikur ÍBV liðsins á þessu tímabili því sæti í sjálfum úrslitaleiknum er í húfi. Í 8-liða úrslitum sigraði ÍBV lið Selfoss á útivelli örugglega 20-37 á meðan FH sigraði Gróttu í Hafnarfirði 25-20.
Við hvetjum Eyjamenn til að mæta í Íþróttamiðstöðina í kvöld og styðja stelpurnar til sigurs.