Handbolti - Stórsigur gegn Haukum

21.jan.2012  15:06

Þórsteina með 10 mörk

Okkar stelpur unnu í dag 18 marka sigur á Haukum í N1-deild kvenna í handknattleik, 38:20. Staðan í hálfleik var 22:8 ÍBV í vil. Þórsteina Sigurbjörnsdóttir var markahæst með 10 mörk og þær Ester Óskarsdóttir og Ivana Mladenovic skoruðu 5 mörk hvor. Glæsilegur sigur sem þýðir að nú er ÍBV með 10 stig í 3.-4. sæti ásamt HK sem á leik til góða.