Handbolti - Stelpurnar taka á móti Haukum í dag

21.jan.2012  09:38
Það má búast við hörkuleik í dag klukkan 13:00 þegar að ÍBV fær Hauka í heimsókn. ÍBV situr í 4.sæti deildarinnar með 8 stig á meðan Haukastúlkurnar eru í 6.sæti með 4 stig. Okkar stúlkur byrjuðu árið vel og sigruðu Stjörnuna á útivelli á meðan þær rauðklæddu töpuðu gegn HK. Við hvetjum Eyjamenn til að mæta í Íþróttahúsið í dag og styðja stelpurnar til sigurs.