Handbolti - Góður sigur gegn Stjörnunni

14.jan.2012  12:02

ÍBV gerði góða ferð í Mýrina í Garðabæ í gærkvöld en liðið bar sigurorð af Stjörnunni, 26:24, í N1-deild kvenna í handknattleik. Okkar stelpur höfðu tveggja marka forystu í hálfleik, 14:12.

Grigore Gqorgola var atkvæðamest með 11 mörk og Ester Óskarsdóttir skoraði 6. ÍBV situr nú í 3 sæti deildarinnar með 8 stig eftir 7 leiki.