Handbolti - Dósasöfnunin er í kvöld

09.jan.2012  11:39

Ekki þriðjudag eins og auglýst var

Í kvöld kl. 18.00 ætla leikmenn og velunnarar handknattleiksdeildar ÍBV að fara um bæinn og safna dósum. Móttökur bæjarbúa hafa alltaf verið frábærar og þökkum við stuðninginn í gegnum tíðina. Þeir sem ekki verða heima á meðan söfnun stendur geta sett pokann við útidyrnar eða haft samband við Jóa Grettis í síma 694-2656 eða Daða Páls í síma 895-1782.