Handbolti - ÍBV tekur á móti Stjörnunni í dag

03.des.2011  11:30
Í dag klukkan 14 taka okkar peyjar á móti Stjörnunni í 1.deild karla. Er um að ræða sannkallaðan toppslag þar sem að Stjörnustrákar eru í þriðja sæti deildarinnar með 11 stig á meðan ÍBV er í öðru sæti með 12 stig. ÍR trónir á toppnum með 14 stig en þeir eru búnir að leika einum leik meira en bæði ÍBV og Stjarnan.
Í síðustu umferð sigraði Stjarnan lið Fjölnis á útivelli 25-30 á meðan okkar strákar töpuðu gegn Víking í Víkinni 25-18. Þegar ÍBV sótti Stjörnuna heim í haust sigraði ÍBV þá bláklæddu 28-31. Þetta verður því spennandi leikur í Íþróttamiðstöðinni í dag. Við hvetjum Eyjamenn til að mæta og styðja strákana til sigurs.