ÍBV-Selfoss í íþróttahúsinu á morgun laugardag klukkan 15:00

Handbolti - Suðurlandsskjálfti #2!

18.nóv.2011  10:11
Eftir að hafa hrist af sér tapið á móti toppliði úrvalsdeildar eru strákarnir farnir að undirbúa sig fyrir næsta bardaga. Hann er heldur betur stór! Segja má að leikir ÍBV og Selfoss séu okkar darby leikir enda Selfoss okkar nágrannar.
 
Leikir þessara liða hafa oftar en ekki verið mjög spennandi og mikil harka hlaupið í menn.
 
Liðin hafa mæst einu sinni á þessu tímabili en þá sigraði ÍBV með 13 marka mun á Selfossi. Það var stærsta tap Selfoss á sínum heimavelli. Það er nokkuð ljóst að þeir koma til með að sýna fram að þau úrslit hafi verið slys.
 
Mættu í Íþróttahúsið á laugardaginn klukkan 15:00!