Handbolti - ÍBV mætir Haukum í bikarnum

14.nóv.2011  11:11

Á morgun klukkan 19.00

Leikur ÍBV og Hauka sem fyrirhugaður var í kvöld frestast til morgundagsins (þriðjudags) þar sem Haukarnir fengu ekki flug í dag. Leikurinn sem er í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins verður flautaður á annað kvöld klukkan 19.00. Við hvetjum Eyjamenn til að mæta og styðja strákana til sigurs í þessum mikilvæga leik.