Handbolti - ÍBV b komið í 8 liða úrslit

14.nóv.2011  11:10

HK sá aldrei til sólar

ÍBV b fór létt með HK b á laugardaginn í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins lokatölur urðu 24-19 sem ná vart að sýna hversu öruggur sigurinn var frá fyrstu mínútu. Sigmar Þröstur átti þokkalegan dag varði 4 víti og um 20 önnur skot sem telst svona rétt í meðallagi hjá þessum pilti sem verður hálfrar aldar gamall innan skamms.
Vörnin var lengstum stórkostleg, en það var helst í sókninni að einhver merki þessi að menn væru eilítið farinir að ryðga sáust. Fram og FH eru einnig komin í átta liða úrslit og heyrst hefur að þeim sé nákvæmlega sama hverjum þau mæta ef þau sleppi við að fara til eyja.