Handbolti - Búið að draga í bikarkeppni HSÍ

28.okt.2011  13:33
Í dag var dregið í bikarkeppni HSÍ, stelpurnar sækja lið Aftureldingar heim í 16 (14) liða úrslitum og fer leikurinn fram annaðhvort 15. eða 16. nóvember. Karlaliðið fær hörkumótherja, Hauka frá Hafnarfirði sem eru á toppi efstu deildar ásamt Fram, það verður fróðlegt að sjá strákana takast á við þetta hörkulið, hér í eyjum 13. eða 14. nóvember. ÍBV2 fær síðan heimaleik gegn HK 2 og fer leikurinn fram 13. eða 14. nóvember, einnig er um að ræða 16 liða úrslit hjá körlunum.