Handbolti - Haukur og Teddi valdir í U-20

25.okt.2011  16:32
Nú rétt í þessu var verið að tilkynna U-20 ára landsliðshópinn í handknattleik. ÍBV á þar tvo fulltrúa. Það eru þeir Haukur Jónsson og Theodór Sigurbjörnsson. Rétt er að geta þess að það á eftir að skera hópinn talsvert niður fyrir komandi verkefni sem er Opna Norðurlandamótið í Noregi 3-6. nóvember. Þjálfari liðsins er Geir Sveinsson. ÍBV óskar þeim félögum til hamingju með valið.