Handbolti - Bikarslagur í Víkinni á morgun

25.okt.2011  13:06
Á morgun, miðvikudag fara okkar strákar í Víkina og mæta þar Víkingum í Eimskipsbikarnum. Leikurinn hefst klukkan 19.30 og er mikilvægt að styðja strákana til sigurs þar sem sæti í 16 liða úrslitum er í húfi.
Eyjamenn tóku á móti Víkingum fyrir nokkrum dögum og sigraði ÍBV þann leik. Þetta er hins vegar önnur keppni og allt undir. Við hvetjum sem flesta til að mæta. Áfram ÍBV