Jafnræði var með liðunum nánast allan leikinn þó hafði ÍBV yfirhöndina megnið af honum, samt aldrei meira en 3 mörk. Þegar um 15 mínútur voru eftir hafði Stjarnan snúið taflinu við og leiddu með 2 mörkum. Þá tók við góður kafli þar sem Kolli varði mjög vel og sóknarleikurinn gekk betur. Það fór svo að ÍBV sigraði með 3 marka mun 28-31. Frábær sigur á erfiðum útivelli.
Liðið er því með fullt hús eftir 4 leiki og situr á toppnum með 8 stig. Einn leikur er eftir í fyrstu umferð en við tökum á móti Fjölni nk laugardag. Stákarnir þurfa þó að leika einn leik áður en að honum kemur því á miðvikudaginn halda þeir aftur í víking (í orðsins fyllstu) því þá spila þeir í 32 liða úrslitum bikarsins á móti Víkingum í Reykjavík.