Handbolti - Eyjamenn sækja Stjörnuna heim á sunnudag

21.okt.2011  14:22

Stuðningsmenn hvattir til að mæta

Á sunndaginn næstkomandi mun lið ÍBV leika gegn Stjörnunni í Garðabæ. Leikurinn sem er í fjórðu umferð 1. deildar karla hefst klukkan 13.00 og er leikið í Mýrinni. Okkar menn tróna á toppi 1. deildar með fullt hús stiga en Stjörnumenn eru í þriðja sæti deildarinnar með 4 stig eftir þrjá leiki.
Stjarnan sigraði í síðustu umferð lið Fjölnis örugglega 35-22 en töpuðu hinsvegar á útivelli gegn Víkingum 26-24. ÍBV sigraði í síðustu umferð Víking 22-19. Það verður því sennilega mikið stuð í Garðabæ á sunnudaginn. Við hvetjum alla stuðningsmenn til að mæta og styðja við bakið á ÍBV.