Handbolti - ÍBV - Víkingur á laugardaginn

14.okt.2011  09:05
Á morgun, laugardag tekur ÍBV á móti Víkingum í 1. deild karla. Leikurinn hefst klukkan 15.00. Bæði lið hafa farið vel af stað í haust og unnið báða sína leiki. Það má því búast við hörku leik í Íþróttamiðstöðinni á morgun. Einnig er rétt að beina því til stuðningsmanna að mæta í appelsínugulum fatnaði til stuðnings Varða og Gunnu. Hvetjum Eyjamenn til að mæta og styðja við bakið á okkar mönnum.