3.flokkur kvenna hefur staðið sig mjög vel í sumar. Stúlkurnar sigruðu sinn riðill og tóku því þátt í úrslitakeppninni. Þar byrjuðu okkar stúlkur á því að sigra lið Fjarðabyggðar/Leiknis 7-0 og daginn eftir lið BÍ/Bolungarvíkur 6-2. Með þessum sigrum tryggði IBV sér sæti í undanúrslitum gegn Þór frá Akureyri. Þór sigraði leikinn 4-0 og lenti IBV því í 3.sæti sem telst frábær árangur.
IBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju.