Yngri flokkar - Kristín Klara í lokahóp U19 hjá KSÍ

19.maí.2026  09:12

Halldór Jón Sigurðsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Kristínu Klöru Óskarsdóttur í leikmannahóp til þátttöku í æfingamóti sem fram fer í Svíþjóð dagana 4.-9. júní nk. Liðið æfir á Íslandi þriðjudaginn 2. júní og miðvikudaginn 3. júní áður en haldið er til Svíþjóðar 4. júní.

 

Laugardagur 6. júní kl. 15:00 Noregur - Ísland

Mánudagur 8. júní kl. 18:30 Ísland - Svíþjóð

 

ÍBV óskar Kristínu Klöru innilega til hamingju með valið og góðs gengis!