Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev, landsliðsþjálfarar U20 karla hjá HSÍ, hafa valið Andra Erlingsson og Elís Þór Aðalsteinsson í lokahóp fyrir komandi Evrópumót sem fram fer í júlí. Hópurinn kemur saman til æfinga núna í maí og einnig áður en haldið verður út á EM.
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon, landsliðsþjálfarar U18 karla hjá HSÍ, hafa valið Anton Frans Sigurðsson, Morgan Goða Garner og Sigurmund Gísla Unnarsson í lokahóp sem tekur þátt í U18 Evrópumótinu sem fram fer í Serbíu 29. júlí - 9. ágúst.
Grétar Áki Andersen og Sólveig Lára Kjærnested, landsliðsþjálfarar U18 kvenna hjá HSÍ, hafa valið Agnesi Lilju Styrmisdóttur og Klöru Káradóttur í lokahóp fyrir sumarið.
Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson, landsliðsþjálfarar U16 karla hjá HSÍ, hafa valið Tönju Harðadóttur í lokahóp sem tekur þátt í European Open í sumar.