Handbolti - Samið við Svavar og Arnar.

14.maí.2011  12:26
Handknattleiksráð gekk í dag frá samningum við Arnar Pétursson um þjálfun mfl. karla næsta tímabil. Þá hefur verið samið við Svavar Vignisson um að halda áfram með mfl kvenna. Árangur liðanna í fyrra var ágætur. Stelpurnar tóku aftur þátt í efstu deild eftir nokkurt hlé og voru hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina. Strákarnir náðu í umspil um sæti í efstu deild, en töpuðu fyrir Aftureldingu með minnsta mun. ÍBV ætlar sér lengra næsta tímabil!!