Handbolti - Vignir með ÍBV næsta vetur

27.apr.2011  21:23
Hornamaðurinn knái og markahæsti leikmaður 1.deildar, Vignir Stefánsson hefur gert tveggja ára samning við ÍBV. Vignir er 21.árs og hefur ætíð leikið með ÍBV. Hann var valinn í 21.árs landsliðiðí vetur og kom fáum á óvart. Hann stundar háskólanám í Reykjavík og æfði með HK í vetur undir stjórn eyjamannsins Erlings Richardssonar.
ÍBV ætlar sér að komast í efstu deild á næsta ári!