Í dag klukkan 14 tekur Afturelding á móti ÍBV í fyrsta leiknum í umspili um laust sæti í efstu deild. Við hvetjum alla Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu að skella sér á leikinn og hvetja strákana til dáða. Næsti leikur í umspilinu verður svo í Eyjum á þriðjudagskvöldið og hefst hann klukkan 19:00.