Karlalið ÍBV í handbolta endaði í fjórða sæti 1. deildar Íslandsmótsins í handbolta. Eyjamenn áttu enn möguleika á þriðja sætinu fyrir síðustu umferðina en þá þurftu þeir að vinna Stjörnuna á útivelli en Garðbæingar voru fyrir síðustu umferðina í þriðja sæti með tveggja stiga forskot á ÍBV. En Stjarnan hafði betur í gærkvöld 30:26.
Þar með er ljóst að ÍBV mætir Aftureldingu í umspili um laust sæti í úrvalsdeild. Í hinni viðureigninni mætast svo Stjarnan og ÍR en sigurvegarar úr viðureignunum tveimur mætast í úrslitaleik um sætið góða. Tvo sigurleiki þarf til að vinna. Fyrsti leikurinn gegn Aftureldingu verður sunnudaginn 17. apríl í Mosfellsbæ, annar leikurinn verður í Eyjum þriðjudaginn 19. apríl og ef oddaleik þarf, þá fer hann fram fimmtudaginn 21. apríl í Mosfellsbæ.
Mörk ÍBV gegn Stjörnunni gerðu þeir Sigurður Bragason 10, Leifur Jóhannesson 6, Davíð Þór Óskarsson 3, Gísli Jón Þórisson, Vignir Stefánsson og Grétar Eyþórsson allir 2 mörk og Sindri Ólafsson 1.
Eyjafrettir.is greindu frá.