Handbolti - Þeir sem mæta í ÍBV búningi geta unnið páskaegg

31.mar.2011  19:42
ÍBV strákarnir keppa mikilvægan leik í handboltanum á föstudagskvöld kl.19:30. Þá mæta þeir Víkingi hér í Eyjum. Þeir þurfa stuðning áhorfenda, en það hefur aldrei staðið á honum þegar mikið liggur við hér í Eyjum.
 
Allir krakkar sem mæta í ÍBV-búning eiga möguleika á að vinna stórt páskaegg.
Dregið verður út og verða þrjú páskaegg í vinning!