Handbolti - Mikilvægur leikur hjá strákunum

31.mar.2011  12:13
ÍBV leikur á föstudaginn sinn síðasta heimaleik í 1.deildinni þegar þeir mæta Víkingi. Leikurinn er mjög þýðingamikill, en með því að sigra kemst ÍBV í úrslitakeppni um sæti í efstu deild. Fyrri leikur liðanna hér í Eyjum endaði með jafntefli, eftir að Vignir Stefánsson jafnaði á síðustu sekúndu leiksins.
Leikurinn fer fram kl.19:30.
Strákarnir byrjuðu deildina mjög vel og töpuðu ekki leik í fyrstu sjö leikjunum. Síðan kom vondur kafli og liðið týndi sjálfu sér. Af næstu níu leikjum töpuðu þeir sjö. En strákarnir virðast vera að toppa á réttum tíma og hafa unnið síðustu þrjá leiki.