ÍBV leikur á föstudaginn sinn síðasta heimaleik í 1.deildinni þegar þeir mæta Víkingi. Leikurinn er mjög þýðingamikill, en með því að sigra kemst ÍBV í úrslitakeppni um sæti í efstu deild. Fyrri leikur liðanna hér í Eyjum endaði með jafntefli, eftir að Vignir Stefánsson jafnaði á síðustu sekúndu leiksins.
Leikurinn fer fram kl.19:30.