Handbolti - Drífa valin í úrvalsliðið.

28.mar.2011  08:53
Drífa Þorvalsdóttir liðsmaður U-17 ára landsliðs Íslands í handbolta var valn í úrvalslið þeirra liða er léku riðilinn hér á Íslandi um helgina.  Drífa þótti besta örvhenta skyttan af öllum.  Það er greinilegt að Drífa á framtíðina fyrir sér.  Ísland lék þrjá leiki í riðlinum, sigraði tvo og tapaði einum.  Ísland komst ekki áfram á markatölu. Önnur stúlka úr IBV Berglind Dúna Sigurðardóttir lék einnig með liðinu um helgina.