Handbolti - Þriðja umferðin hefst á laugardag

18.feb.2011  16:39
Strákarnir taka á móti Gróttu hér í Eyjum á laugardag kl.13:00. Þetta er fyrsti leikur þriðju umferðar íslandsmótsins, en leiknar eru þrjár umferðir síðan er úrslitakeppni. ÍBV var efst eftir fyrstu umferð, en hefur verið að fatast flugið í annari umferð. Nú ætla strákarnir að taka sig saman í andlitinu og vinna Gróttu eins og þeir gerðu í fyrsta leik.