Handbolti - Baráttursigur

05.feb.2011  17:03
ÍBV vann sannkallaðann baráttusigur gegn FH-u í kvöld þegar liðin áttust við í Eyjum.  FH-ingar og dómarapar leiksins hafði komið með Herjólfi fyrr um daginn en ef þeir hefðu ekki gert það, hefði leikurinn aldrei farið fram.  Það var hins vegar ekki að sjá á FH-ingum að þeir hafi verið á sjónum fyrr um daginn því þeir veittu Eyjamönnum verðuga keppni.  Að lokum höfðu Eyjamenn þó sigur, nauman reyndar því lokatölur urðu 26:25 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 15:12.
Í upphafi leiks virtust Eyjamenn ætla að stinga af því þeir komust í 5:2 en FH-ingar náðu hins vegar fljótlega áttum og náðu að minnka muninn niður í eitt mark.  Lengst af munaði einu til tveimur mörkum í fyrri hálfleik en Eyjamenn skoruðu þó síðustu tvö mörk hálfleiksins og höfðu yfir 15:12.
 
FH-ingar héldu áfram að gera Eyjamönnum lífið leitt í síðari hálfleik og börðust eins og ljón.  Leikmenn ÍBV áttu erfitt uppdráttar sóknarlega í síðari hálfleik en varnarleikurinn skánaði hins vegar mikið.  FH-ingar náðu hins vegar þriggja marka forystu 20:23 þegar tæpar tíu mínútur voru eftir af leiknum en þá tók Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV leikhlé og las yfir hausmótunum á leikmönnum sínum.  Ræðan virtist skila tilætluðum árangri því Eyjamenn jöfnuðu metin og komust svo yfir 24:23.  Í hönd fór svo æsispennandi lokakafli þar sem liðin skiptust á að skora.  Allt ætlaði upp úr að sjóða undir lokin þegar FH-ingar fóru í sína síðustu sókn, einu marki undir.  Eyjamenn framkvæmdu ranga skiptingu en það kom ekki að sök því aðeins var sekúnda eftir af leiknum og síðasta skot FH-inga, úr aukakasti endaði í varnarvegg ÍBV. 
 
Þrátt fyrir að handboltinn hafi ekki verið í háum gæðaflokki lengst af, þá var leikurinn hin besta skemmtun.
 
Mörk ÍBV: Sigurður Bragason 8, Gísli Jón Þórisson 4, Grétar Eyþórsson 3, Davíð Þór Óskarsson 3, Leifur Jóhannesson 2, Brynjar Karl Óskarsson 2.
Varin skot: Kolbeinn Arnarson 10, Þorgils Orri Jónsson 7.