Handbolti - Strákarnir mæta FH á föstudaginn

03.feb.2011  10:35
ÍBV leikur gegn FH-u á föstudaginn hér í Eyjum kl.19:00. Mikil spenna er komin í 1.deildina og hefur hún verið að jafnast þegar liðið hefur á veturinn. T.d. vann Selfoss-u ÍR í síðustu umferð. ÍBV er sem stendur í fjórða sæti, en það gefur keppnisrétt í úrslitakeppni um sæti í efstu deild.
 
Stelpurnar leika útileik gegn Haukum kl.13:00. Þær eru líka í mikilli baráttu um fjórða sæti og þar með sæti í úrslitakeppninni. Vigdís Sigurðardóttir mun leika með Haukum.