Handbolti - Björn Kristmanns lánaður í Fjölni

03.feb.2011  10:27
Björn Kristmannsson mun leika með Fjölni út þetta tímabil. Björn er í námi í Reykjavík og hefur æft með Fjölni í vetur, en leikið með ÍBV. Fjölnismenn sóttust eftir því að fá hann í sínar raðir og var það sameiginleg ákvörðun Björns og Arnars Péturssonar þjálfara ÍBV að hann léki með þeim út veturinn. Hann mun síðan aftur koma til ÍBV.
Óttar Steingrímsson hefur leikið með Fjölni í vetur. Einnig æfir Daði Magnússon með þeim. ÍBV á því útibú í Grafarvogi. Þjálfari þeirra er gamla kempan Gunnar Gunnarsson.