Handbolti - Sigur gegn ÍR

30.jan.2011  10:38
Leikmenn kvennaliðs ÍBV sinntu í dag skylduverkunum þegar þær lögðu ÍR að velli í Eyjum.  Lokatölur urðu 30:21 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 18:12.  Þar með heldur ÍBV áfram að þjarma að Fylki, sem er í fjórða sæti deildarinnar en fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppni Íslandsmótsins.  Nú munar aðeins einu stigi á liðunum þegar þau eru bæði búin að spila tólf leiki en Fylkir á reyndar að spila síðar í dag gegn FH.
Eyjastúlkur voru nokkurn tíma í gang í dag en jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfeik.  En um miðjan hálfleikinn skoruðu Eyjastúlkur sjö mörk gegn aðeins einu mark ÍR og náðu þar með þægilegu forskoti.  Munurinn hélt svo áfram að aukast í síðari hálfleik og sigurinn í raun mjög sannfærandi.  Undir lokin fengu svo varamenn ÍBV að spreyta sig, m.a. Guðrún Ósk Guðmundsdóttir sem var að spila sinn fyrsta meistaraflokksleik.  Hún gerði reyndar gott betur því hún skoraði úr fyrsta færinu sem hún fékk og byrjar því meistaraflokksferilinn vel.