2.flokkur karla lék um síðustu helgi tvo leiki við Akureyri í Íslandsmótinu. Fyrir leikina höfðu Akureyringar ekki tapað stigi í vetur. Báðir leikirnir voru jafnir og spennandi og enduðu með eins marks mun. Fyrri leikinn vann Akureyri 26-27, en seinni leikinn sigraði ÍBV 25-24. Á fimmtudaginn mætti ÍBV Aftureldingu í 16 liða úrslitum Bikarkeppninnar. ÍBV var mun betri aðili leiksins og sigraði 36-32.