Handbolti - Góður árangur hjá yngri flokkunum

24.jan.2011  19:38
Það gekk vel hjá ÍBV þegar þriðja umferð Íslandsmótsins hjá 5 og 6.flokki fór fram. 5.flokkur karla yngra ár sigraði alla fimm leikina sína og unnu 2.deildina. Þeir komast því upp í 1.deild, en þar leika aðeins fimm lið. 5.flokkur karla eldra ár sigraði fjóra leiki, en töðuðu einum.
6.flokki karla eldra ár gekk líka vel, þeir unnu þrjá, gerðu eitt jafntefli og töpuðu einum. Þeir komust í 1.deild.