Handbolti - Stelpurnar unnu FH á útivelli

11.jan.2011  20:42
ÍBV vann sigur á FH í Kaplakrika í kvöld. FH hafði forystu nánast allan leikinn. En ÍBV stelpurnar gáfust ekki upp og jöfnuðu þegar þrjár mínútur voru eftir. Sigurmarkið kom þegar um ein og hálf mínúta var eftir. FH gat jafnað í lokin en vörnin okkar hélt. Lokastaðan 24-25.
Með sigrinum er ÍBV komið í 6.sæti deildarinnar. En Svavar þjálfari hefur sett sem markmiðið vetrarins að ná 5.sæti.  Næsti leikur stelpnanna er heimaleikur á laugardaginn gegn Fylki. Fylkir er í 4.sæti með 12 stig, ÍBV er með 7 stig.