Handbolti - Börðust

05.des.2010  10:29
Það var allt annað ÍBVlið sem lék gegn ÍR í dag en það sem hefur leikið síðustu þrjá leiki. Reyndar stefndi í sömu útreiðina í byrjun leiks, því eftir 16 mín. leik var staðan 3-9 og ekkert að frétta. Þá kom loginn sem einkenndi liðið í fyrstu umferðinni. ÍBV lék með hjartanu og strákarnir börðust eins og ljón. Innkoma Þorgilsar Orra var sterk og náði hann að verja og koma boltanum strax á Vigni í hraðaupphlaup. Á þessum kafla breyttu þeir stöðunni í 8-10...en leyfum Júlla Inga segja frá:
ÍR-ingar fögnuðu þriggja marka sigri í Eyjum í dag.  Fyrir leikinn sátu liðin í 3. og 4. sæti 1. deildar og stigin tvö sem voru í boði, voru báðum liðum afar mikilvæg.  Eyjamenn fóru mjög illa af stað í leiknum, ÍR-ingar komust í 1:5 og má segja að þessi slæma byrjun hafi komið Eyjamönnum um koll.  Leikmenn ÍBV náðu þó að jafna metin þegar skammt var til leiksloka en komust ekki lengra en það og ÍR-ingar skoruðu fjögur mörk gegn einu mark ÍBV á lokakaflanum.

Leikmenn ÍBV voru varla með fyrstu fimmtán mínútur leiksins og ÍR-ingar voru ekki í neinun vandræðum með að finna leiðina í gegnum óþétta vörn heimamanna.  Kolbeinn Arnarson, markvörður ÍBV var ekki öfundsverður af hlutskipti sínu enda varði hann aðeins eitt skot fyrsta stundarfjórðunginn.  En Þorgils Orri Jónsson tók þá stöðu hans á milli stanganna og við það virtist færast aukinn kraftur í Eyjamenn.  Þorgils varði vel í leiknum, alls 17 skot og var besti leikmaður ÍBV-liðsins.  Smá saman náðu Eyjamenn að saxa á forskotið en í hálfleik munaði þó enn þremur mörkum, 11:14 eftir að ÍR-ingar höfðu skorað síðasta markið úr vítakasti þegar leiktíminn var úti.
 
Síðari hálfleikur var svo í járnum allan tímann en ÍR-ingar voru þá ávallt skrefinu á undan.  Eyjamenn fengu fjölmörg tækifæri til að komast enn betur inn í leikinn en það virtist allt vera á móti Eyjamönnum í dag.  Leikmenn ÍBV eiga þó heiður skilið fyrir að gefast ekki upp þrátt fyrir mótlætið og halda áfram enda náði Vignir Stefánsson að jafna metin í 19:19 þegar skammt var til leiksloka.  En þá tóku við enn ein mistökin, ÍBV fékk brottvísun fyrir kjaftbrúk og voru um tíma tveimur færri.  ÍR-ingar nýttu sér það ágætlega, skoruðu þrjú næstu mörk og úrslit leiksins ljós.  Lokatölur urðu 20:23.
 
Eins og áður sagði var mótbyr Eyjamanna talsverður í dag.  Bæði gerðu þeir sig seka um klaufaleg mistök, nýttu ekki dauðafæri, skutu í tréverkið og fengu klaufalegar brottvísanir.  Hins vegar verður ekki hjá því litið að dómarapar leiksins átti slæman dag.  Ósamræmið var algjört og í raun voru dómararnir einfaldlega lélegir.  Það bitnaði mjög á ÍBV-liðinu, mun minna á ÍR-ingum.
 
Næsti leikur ÍBV er á útivelli á móti toppliði Gróttu.  Eyjamenn sýndu í dag að þeir eru að vinna sig upp úr þeim öldudal sem liðið hefur fallið í en ÍBV hefur aðeins fengið eitt stig úr síðustu fjórum leikjum sínum.  En haldi liðið á sömu braut og það gerði síðustu 45 mínútur leiksins í dag, þá eiga stigin eftir að skila sér.
 
Mörk ÍBV: 
Vignir6
Grétar Þór5
Leifur3
Brynjar Karl3
Sindri1
Bragi1
Birkir Már1
 
 

Varin skot:

 

Þorgils

17

Kolbeinn

1