Handbolti - Strákarnir leika við Stjörnuna næsta laugardag

23.nóv.2010  11:30
ÍBV leikur gegn Stjörnunni n.k. laugardag kl.13:00 í Mýrinni í Garðabæ. ÍBV sigraði fyrri leik liðanna í vetur 21-18. ÍBV er fyrir leikinn með 11 stig, en Stjarnan er með 10....
Líklegt er að Bragi komi inn í hópinn aftur, en hann hefur glímt við axlarmeiðsli. Einnig er Einar Gauti á batavegi.
 
Vonir standa til þess að Sindri Haraldsson komi inn í leikmannahópinn fyrir leik ÍBV gegn ÍR, sem fram fer laugardaginn 4.des. 
 
Sindri knúsar Auðunn son sinn á myndinni, en Zophanias, Viktor og Jói eru niðurlútir. Enda er hún tekin á leik ÍBV-Selfoss U.