Handbolti - Stelpurnar í átta liða úrslit

10.nóv.2010  20:48
Það var annar bragar á leik ÍBV gegn Haukum, en þegar liðin mættust í deildinni 23.okt. Þá lak slenið af stelpunum og Haukar komust í stöðuna 1-10 og þrátt fyrir góðan endasprett í þeim leik unnu Haukastelpurnar.
En í dag komu eyjastelpurnar vel stemmdar til leiks..
..og náðu strax öruggri forystu 7-1. Hana létu stelpurnar aldrei frá sér og staðan í hálfleik var 19-10. Það fór þó  um áhorfendurum um miðjan seinni hálfleik þegar munurinn var orðinn þrjú mörk. En þá settu allir í fluggírinn bæði leikmenn og áhorfendur og sköpuðu þá frábæru stemmningu sem hefur verið ríkjandi í vetur. ÍBV spilaði frábærlega í lokin og með slíkri spilamennsku gæti liðið farið langt í keppninni.
Lokastaðan varð sjö marka sigur ÍBV; 36-29.
Mörk ÍBV:
Þórsteina10
Guðbjörg 8
Ester7
Renata4
Hildur Dögg4
Sísí Lára1
Aníta1
Sandra1