Handbolti - Vignir braut 200 marka múrinn.

08.nóv.2010  12:32
Þegar ÍBV sigraði FH-u núna á laugardaginn náði Vignir Stefánsson merkum áfanga. Mark hans nr. 4 í leiknum var mark númer 200 fyrir ÍBV.
Vignir hefur leikið 74 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 205 mörk sem þýðir 2,77 mörk í leik...
 
Hann hefur á þessu tímabili leikið 6 leiki og skorað í þeim 52 mörk sem gerir 8,67 mörk í leik! Geri aðrir betur.
 
Það er alveg greinilegt að Vignir er á réttri braut því fyrir skemmstu var hann valinn í æfingahóp U-21 landsliðs Íslands.
 
Við óskum Vigni til lukku með þessa áfanga og væntum þess að þetta sé rétt byrjunin !