Handbolti - Bikarinn til Eyja

01.nóv.2010  20:45
ÍBV drógst gegn Haukum í mfl.kvenna í 16 liða úrslitum Bikarkeppni HSÍ. ÍBV b drógst einnig gegn aðalliði Hauka hjá körlunum. Unnið er að því að tímasetja leikina og eru líkur á því að þeir verði laugardaginn 13.nóv, en báðir leikirnir fara fram í Eyjum.
B-liðið hefur verið að æfa stíft og heyrst hefur eftir áreiðanlegum heimildum að....
..Sigmar Þröstur Óskarsson muni leika með liðinu. Það var einmit hann sem fór fyrir liði ÍBV þegar liðið varð Bikarmeistari 2.mars 1991. Þar sem mikil reynsla býr í b-liðinu er ekki lokum fyrir því skotið að Sigmar muni lyfta bikarnum aftur 20 árum síðar!