Handbolti - Strákarnir komnir í annað sætið

30.okt.2010  16:56
ÍBV sigraði Fjölni á útivelli 31-21 og eru þar með í öðru sæti eftir fimm umferðir. ÍBV hefur jafnmörg stig og Stjarnan sem er í efsta sæti, en þeir eru með betra markahlutfall. ÍBV var yfir allan tímann og var Arnar að prófa ýmsar útfærslur á leik okkar manna. Óttar Steingrímsson lék með Fjölni og skoraði tvö mörk.
Mörk ÍBV:
Vignir Stefánsson 9
Leifur Jóhannesson 7
Theodór Sigurbjörnsson 4
Davíð Óskarsson 3
Brynjar Karl Óskarsson 2
Bragi Magnússon 2
Birkir Már Guðbjörnsson 2
Grétar Eyþórsson 1 
Sindri Georgsson 1